Bloggsvæði Kristínar Snæland
15.09.2006 12:24:24 / Kristins

Verkefni fyrir nemendur í 10. bekk

Hvaða hlutverkaspenna er til staðar í eftirfarandi dæmum og hvernig myndir þú leysa hana?

  • Þú ert í göngutúr með foreldrum þínum á laugardagskvöldi og mætir bekkjarfélögum þínum sem eru á leiðinni í partý.
  • Pabbi þinn eða mamma eru kennarar og þau kenna eitt af þeim fögum sem bekkurinn er í.
  • Þú tilheyrir mjög sterkri klíku. Þú ert nýkominn með kærasta eða kærustu og tekur viðkomandi með þér til klíkunnar.
  • Foreldrar þínir eru að fara út úr bænum um helgi og þú ert ein/einn heima. Þau hafa bannað þér að halda partý - en félagar þínir leggja hart að þér að halda partý.
  • Þú átt engin almennileg föt og félagar þínir eru farnir að gera grín að þér. Þú biður um pening heima fyrir nýjum gallabuxum en færð neitun.
  • Þú ert búin(n) að lofa að heimsækja ömmu þína og hjálpa henni að þrífa íbúðina. Rétt áður en þú ferð af stað kemur vinur/vinkona þín í heimsókn og biður þig um að hjálpa sér við heimanámið því það sé próf á morgun.
Veljið eitt af þessum verkefnum og svarið inn á bloggið mitt :) Kveðja Kristín

» 37 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 09:40:33 / Kristins

hæ hæ

Kíkið á sirkussíðuna mína, slóðin er í síðustu færslu. Þar er sagt frá London og Bournmouth og nýjar myndir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 08:45:36 / Kristins

Ný síða í vinnslu

Hæ folks

Ég er að undirbúa að færa bloggið yfir á sirkusinn.is og þetta er slóðin þangað. Þar er ég að vinna að nýrri myndasíðu því hin datt út mér til lítillar ánægju. Kíkið á nýju síðuna

http://kristinsnae.minnsirkus.is/Blogg/

Ég var annars í afmæli hjá pabba á laugardaginn. Við keyrðum suður á laugardag, fórum með Ölmu og pabba í Fjölskyldu og húsdýragarðinn þar sem Alma hljóp á milli leiktækja skríkjandi af gleði. Svo fór hún með pabba sínum í bát á drullupollinn, hann bilaði og hún panikaði og grenjaði úr sér lungu og lifur... he he he :lol: Eftir þetta fórum við og hittum Friðrik og strákana og Sibba í Keiluhöllinni og tókum einn leik. Allir spiluðu með rennuna uppi því það voru svo margir krakkar og fyrir rest vann Friðrik alla hina með eins stigs forskot á Ölmu (note bene... hún er fjögurra ára og var að keila í fyrsta skipti.......!!!!!) sem varð í öðru sæti. Það var bara fyndið þegar tveir leikir voru eftir, hún yfir og þá benti hún á frænda og sagði roggin... ég ætla að vinna þig!!!! Við dóum úr hlátri... he he he

Næst fórum við í sund, skiluðum krökkunum og fórum heim til Lilju, kærustu pabba. Þar var skipt um föt og farið með limmósínu á Argentínu þar sem pabbi bauð í glæsilega máltíð.. nammi namm......

Ég hélt ræðu og það gerðu Sibbi og Friðrik einnig og skemmtu allir sér  mjög vel. Við hlógum svo mikið að maður var með strengi í gær... Eftir matinn var svo slakað á heima hjá Sif, dóttur Lilju. Þetta var mjög fínt og við Siggi gistum hjá Sif og læddumst út fyrir allar aldir þegar hún og kærastinn voru ennþá sofandi. Heim var komið í gær eftir heimsókn til Mæju og Gumma og einnig  hjá Gísla og Gerði. Við Alma fórum svo í fjallgöngu í gær, pöntuðum pizzu og sofnuðum snemma enda allir þreyttir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 14:59:32 / Kristins

Óvissuferðin rosalega

Vá það var ekkert smá gaman um  helgina. Ég var í óvissuferð með Ífunum til Reykjavíkur. Við lögðum af stað á fimmtudegi, borðuðum á Gauksmýri og sáum baulað á Sylvíu Nótt. Leiðinlegt fyrir hana en frekar fyrirséð. Mér fannst að vísu áhorfendur dónalegir, það er hægt að finnast eitthvað leiðinlegt án þess að baula en hvað með það. Við stoppuðum svo við Baulu þar sem Jóna og Eva Margrét létu okkur dansa á bílaplaninu í skítakulda. Við vorum samt í glamúrfatnaði og sumar flottari en aðrar :lol: Á föstudeginum var farið á Listasafn Einars Jónssonar, upp í Hallgrímskirkjuturn, í keramikmálun, Listasafn Íslands, Grænan kost og Jómfrúina. Við fórum síðan að gefa öndunum og til að forðast að fá fuglaflensu vorum við auðvitað vel búnar með hárnet, munngrímu, svuntu, plasthanska og hlífðarskó!!!! Við vöktum auðvitað smá athygli og einn róni stal af okkur andabrauði :) he he he he he Seinna um kvöldið fórum við á Fridays og svo í lúxussalinn í Smárabíó að horfa á DaVinci Lykilinn. Frábær sæti og mynd, mæli með því. Nú á laugardeginum var byrjað á sandkastalagerð í Nauthólsvík og svo gengið upp í Perlu og farið á Víkingasýningu þar. Farið í Keilu og snædd þar pizza. Því næst farið á Hótel Sögu í Mecca spa þar sem við fengum partanudd, heitan pott, gufu og sauna ásamt ýmsum blautum og þurrum veitingum!!!! Þegar við komum til baka á hótelið var stutt jóga og svo spariföt, grillmatur, Eurovision og svo brjálað ball á Nasa með Páli Óskars. Á sunnudeginum týndum við skeljar og steina í Hvalfirði, keyrðum Dragann, það sprakk á bílnum... he he he :$: en svo fórum við til Jónu og skoðuðum tómata, býflugur og dældum í okkur ljúffengum veitingum. Það voru þreyttar en ánægðar konur sem konu heim um 6 leytið í gær. :) Svo næstu helgi er aftur suðurferð því pabbi á 60 ára afmæli á morgun og hann heldur upp á það næstu helgi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 11:52:30 / Kristins

Rauðir skór og gott veður

Ég bara varð að segja ykkur að ég keypti mér rauða skó um helgina. Fékk þá á 300 kall :D. Þeir eru rauðir, opnir og með hæl, mjög sumarlegir og sætir :) Nú á ég bara eftir að kaupa mér eina aðra skó í lit áður en ég má aftur kaupa svarta, brúna eða ljósa!!! he he he :hehe:

Við fórum út á Malland um helgina og ég lærði og vann eins og bestía... nennti því samt ekki en svona er það bara á þessum árstíma. Þegar ég kom heim hamaðist ég í lóðinni í rúma tvo tíma enda gott veður og alveg tilvalið að dúllast aðeins þar.


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 13:51:05 / Kristins

Ífukvöld og skór

Í gær voru við Ífukonur með menningarkvöld á Sæluviku. Það var haldið í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra og mættu um 120 manns. Minn hópur var með leiklestur um konur og viðskipti á Sauðárkróki frá 1955 -1980. Við stóðum okkur að sjálfsögðu vel og fólk hafði gaman að. Á þessu skemmtikvöldi voru einnig skópistlar og atriði tengd, móður, konu og meyju ásamt skóskiptingum en konur og skór var undirþema kvöldsins. Við mættum allar með 8 skópör sem við notuðum til að skreyta sviðið með. Það kom í  ljós að ég hef ákaflega óspennandi skó.... þ.e.a.s. þeir eru lang flestir svartir, nokkrir brúnir eða ljósir. Ég á enga skó í öðrum litum en þarna mátti sjá rauða, bláa, græna, fjólubláa, bleika og ýmsa aðra liti. Þeir voru auk þess margir mun skrautlegri en mínir skór. Það er ekki það að mig langi ekki í svona skó... mig langar oft í þá en ég er svo föst í að vera praktísk þegar kemur að skókaupum að ég enda alltaf á einhverjum sem ég get notað við næstum allt í 100 ár.... úfffff. Ég bara verð að gera eitthvað í þessu í Bournmouth... ég var alveg veik í marga af þessum skóm og nú er bara að duga eða drepast... ég mun kaupa a.m.k. tvenn pör í einhverjum lit sem ég á ekki áður en ég kaupi mér aðra svarta skó. Hvað er þetta annars með konur og skó....???? Af hverju elska konur skó???? Hvað með veski????? Tjáið ykkur :)

Það er hægt að sjá mynd af mér á skíðum á heimasíðu Árskóla.. arskoli.is.... lengst til vinstri er hlekkur sem heitir myndasafn og þar undir kemur skíðaferðalag 9 .bekkur. Fletta svo bara á 4 síðu og þar er mynd af mér í blárri ullarpeysu með húfu og sólgleraugu á skíðum, nýkomin niður brekkuna  :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 13:54:19 / Kristins

Myndasíða óvirk í bili

Ég ætlaði að setja inn mynd af mér en það virkaði ekki. Geri það fljótlega en þeir sem geta ekki beðið geta fljótlega eftir helgi farið inn á vef Árskóla og séð myndir úr skíðaferðalaginu og þar ætti að vera mynd af mér á skíðum. Slóðin er www.arskoli.is

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 13:45:43 / Kristins

Á skíðum skemmti ég mér... trallallallalla

Ég er lang flottust!!!!! Ég bara varð að segja ykkur það... en þið vissuð það nú fyrir :) Well.... ég fór í skíðaferðalag með 9. bekk á þriðjudag og miðvikudag. Til að gera langa sögu stutta fór ég á skíði báða dagana og stóð mig bara nokkuð vel. Ég datt ekkert, rann aðeins afturábak þegar ég fór einu sinni úr lyftunni en að öðru leyti bara meistara taktar. Ég hef nú bara farið tvisvar áður og þá var ég 12 ára. Því er ekki skrýtið þó ég hafi verið og sé ansi stollt af mér. Það er að minnsta kosti á hreinu að ég hefði aldrei gert þetta ef ég hefði verið 51 kg þyngri. Ég hefði aldrei þorað því en núna þori ég öllu... he he he ja svona næstum því... ég þorði ekki á bretti :) enda nóg að læra á eitt í einu. Prufa það bara seinna. Ég setti myndir af mér á skíðum inn á myndasíðuna mína svo kíkið endilega.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 14:07:56 / Kristins

Gleðilegt sumar

Gleðilega páska og gleðilegt sumar öll sömul. Djöfull er ég búin að vera löt að blogga undanfarið en það er reyndar búið að vera mikið að gera og ég líka á ferðalagi. Það var mjög gaman fyrir sunnan um páskana. Við fórum í fullt af fermingum, hittum fullt af fólki og fórum í eina jarðarför. Við Alma komum  heim á skírdag og pabbi og Lilja komu til okkar á föstudaginn langa. Þau voru fram á páskadag og þegar þau fóru skruppum við yfir nótt út á  Skaga til tengdó á Mallandi. Það var sem sagt fullt af mat og samskiptum um páskana en þannig á það líka að vera. Ég er að fara í fermingu á morgun og við höldum upp á afmælið hennar Ölmu á sunnudaginn svo það er ennþá nóg að gera. Ég ætla því að hafa þetta stutt núna en segja ykkur meira eftir afmælið og setja þá líka inn nýjar myndir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 10:23:53 / Kristins

bráðum páskar

Fyrir þá nemendur mína (Pálínu og aðra... :)) sem bíða eftir að ég setji myndirnar frá árshátíðinni á netið þá verð ég að segja að ég hef bara ekki nennt því og líka verið upptekin undanfarið. Það er samt planið að setja nýjar myndir inn á myndasíðuna mína um helgina svo það ætti að vera óhætt að kíkja á sunnudaginn.

Að öðrum hlutum. Ég er auðvitað farin að hlakka til páskafrísins eins og aðrir. Maður hittir vini og ættingja sem maður sér ekki á hverjum degi. Það verður gaman að fara suður og mæta í allar þessar fermingarveislur. Okkur er boðið í 8 fermingarveislur þetta árið og þar af eru 4 sama daginn og 6 í páskafríinu!!!!! :$. Þó mér finnist gaman í veislum er þetta nú einum of. Það þýðir að við Siggi verðum að skipta okkur. Ég ætla að mæta hjá Ingu Sif og Sif  sama daginn og Siggi fer til Brynju frænku sinnar og Gísla bróður síns. Á skírdag eru bæði Auður og Jóna að ferma og ég ætla að skrópa hjá Auði því hún er með kvöldmat. Ef ég fer til hennar kemst ég svo seint af stað heim. More later.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 23:28:19 / Kristins

Góð kaup hjá Rauða krossinum

Núna eru árshátíðirnar loksins búnar, krakkarnir stóðu sig vel og maður getur aftur farið að sinna venjulegri kennslu og slakað svolítið á. Það er flensa að ganga svo sumir bekkir eru bara hálfir og í dag var Alma komin með 39 stiga hita. Ég reikna því síður með að fara suður þessa helgi í fermingarveislu eins og stóð til. Að sumu leyti get ég vel hugsað mér að slaka á heima en mig langaði samt suður að sjá íbúðina hans pabba og mæta í veislu. Það er alltaf gaman. Ég gerði svolítið síðustu helgi sem ég hef aldrei gert áður. Ég fór á markað hjá Rauða krossinum og keypti mér notuð föt!!!! Fatasjúka ég gerði góð kaup :) :haha: Ég keypti rauða leðurkápu á 1000 kall, drappaðan leðurjakka (eða kápu.. svona millisídd) á 1000 kall og fullan poka af fötum á 500 kall!!!!!! Í pokanum voru grænar flauelsbuxur, fjórir stuttermabolir, skyrta og brúnt leðurbelti!!!! Buxurnar, einn bolurinn og beltið var greinilega ónotað!!!! Ég ætla sko að kíkja þarna aftur og gera meira af þessu. Það var auðvitað fullt af ljótum og hallærislegum fötum en með því að gramsa og máta tókst mér að finna margt eigulegt. Þetta er sniðugt þegar mann vantar allt. Ja... sko... ég er nú búin að kaupa svo mikið af fötum undanfarna tvo mánuði að mig vantar svo sem ekki mikið :lol: en alltaf gaman að eiga nóg af fötum!

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 13:35:43 / Kristins

Árshátíðar og fermingar

Það er vorblíða dag eftir dag hér fyrir norðan. Ég er að hugsa um að sinna garðvinnu þegar ég er búin að vinna í dag enda næstum 10 stiga hiti, sól og léttskýjað... bara frábært!!!!:haha: Það er búið að vera mikið að gera hjá mér í félagslífinu síðustu daga og í næstu viku er árshátíð hjá unglingastigi. Það þýðir að við erum á stanslausum æfingum, reddum búningum og fleira sem þarf til að allt gangi upp. Það verða tvær leiksýningar á mánudag og aðrar tvær á þriðjudag. Ég hlakka rosalega til á miðvikudaginn... þegar þetta stand allt saman er búið. Þetta er að sumu leyti gaman en vesem fyrir mig því ég þarf að redda Ölmu pössun frá því hún er búin á leikskólanum og þar til ég kem heim um 10 að kvöldi. Greyið verður á tveimur stöðum. Fyrst eftir leikskólann verður hún hjá Ingu Láru en við erum svo sniðugar að  hafa verkaskiptingu. Hún passar Ölmu núna og þegar miðstigið er með árshátíð passa ég stelpuna hennar.. :D: geðveikt sniðugar!!!! :lol: Ég sæki hana svo um kvöldmatarleytið og fæ nokkrar mínútur með henni á milli sýninga. Svo passa gelgjurnar á heimilinu hana og koma henni í bælið. Það verður líklega frekar athyglissjúk lítil stelpa sem ég þarf að sinna næsta miðvikudag...!! Þetta er eiginlega ferlegt því síðasta mánudag og þriðjudag hitti ég hana líka lítið útaf félagsstörfum. Við fórum því í gær í langan göngutúr mæðgurnar, kíktum á bókasafnið og á kaffihús. Þetta var þrælfínt en svo var Alma svo heppin að græða einnig spóluna með upptökunum hjá 10. bekk af leikritinu af Dýrunum í Hálsaskógi. Hún sat límd við sjónvarpið í gær og horfði á þetta. Hún saug puttan, raulaði með lögunum og klappaði þar sem áhorfendur klöppuðu. Það var bíó að fylgjast með henni. Nú hlakka ég bara til helgarinnar enda hitti ég Sigga aldrei orðið nema um helgar. Hann vinnur svo mikið að maður þarf að hafa mynd alltaf uppi við til að minna sig á hvernig hann lítur út... :$ en svona er það bara. Okkur er boðið í 7 fermingar þetta árið!!!!!!! SJÖ..... getið þið ímyndað ykkur....... við verðum komin með ógeð. Þar af eru 3 sama daginn!!! he he he en þá erum við að vísu að spá í að skipta okkur. Það eru tvær vinkonur mínar að ferma í Keflavík og bróðir Sigga á Akranesi. Sniðugast að fara bara á sitthvorn staðinn því ég verð hvort sem er nýbúin að hitta sama fólkið (ættingja hans) í fermingunni hjá systir hans tveimur vikum áður svo ég vil frekar fara í hinar veislurnar. Jæja nenni ekki þessari ritgerð lengur. Hlakka bara til páskafrísins og vorsins þegar við Siggi förum með kennurunum til Bournmouth og London í 8 daga. Það verður geggjað!

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 13:16:47 / Kristins

Afslöppun í vetrarfríi og veikindi

Núna er síðasti dagur í vetrarfríi og ég er búin að hafa það gott. Ja.... fyrir utan veikindi. Ég var svo óheppin að fá sýkingu í kinnholurnar og geng því núna fyrir pensílíni. Svo fannst mér ég orðin svo hress á sunnudaginn að ég fór út í göngutúr og sló niður því í morgun var ég slöpp og með hita. Ég verð nú örugglega orðin betri á morgun því ég tek því bara rólega í dag og klára pensilínið mitt ;) Ég fór með Ölmu á leikskólann í morgun og ætlaði aftur upp í rúm en kíkti fyrst á póstinn minn. Kom þá ekki Erla vinkona inn á msn en hún býr í Svíþjóð. Það var orðið langt síðan við höfðum spjallað og eftir 3 og hálfan tíma og verki í rössum ákváðum við að hætta og gera eitthvað uppbyggilegra... Það er potttétt að þetta eru lengstu samræður sem ég hef átt á msn eða í síma. Mér leiðast símar og msn er bara fínt í smá stund. Annars er búið að vera fínt hjá mér síðustu daga. Ég er búin að fara í heimsóknir, baka, taka á móti heilu kvennfélagi í ostapinna og snarl og bara hafa það náðugt. Jóna vinkona í Borgarfirði (rétt við Kleppjárnsreyki) er í kvennfélagi. Hún var að skipuleggja óvissuferð í Skagafjörð og ég hjálpaði henni aðeins. Mér fannst svo tilvalið að hitta hana á djamminu um kvöldið svo ég bauð nokkrum stelpum í partý og kíkti út á lífið. Ég hef ekki farið út með stelpunum... mjög lengi!!! Maður fer alltaf með makanum en í þetta skipti átti hann að sjá um að passa svo ég kæmist út. Það var alveg hrikalegt stuð hjá okkur. Við fórum meira segja í nokkrar mínútur inn á Barinn. Það var bara fyndið því ég stóð og horfði í kringum mig og sá all nokkra fyrrverandi nemendur mína... :S var svona ekki alveg að fíla það og við fórum aftur á Kaffi Krók enda ágætt stuð þar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 15:35:50 / Kristins

Bráðum vetrarfrí

Vá, bráðum vetrarfrí 8). Ég á bara eftir að vinna einn dag og þá kemur 6 daga vetrarfrí. Það verður geggjað. Ég hlakka ótrúlega mikið til. Maður verður nú að njóta þess aðeins að slaka á og njóta lífsins. Ég ætla að reyna að gera sem minnst skynsamlegt heldur frekar hluti sem rækta líkamann eða auðga andann.... ohhhh ég er svo skáldleg :) :haha: Maður skreppur í ræktina, út að ganga, kannski í sund, fer í heimsóknir, gerir handavinnu, les góða bók, leikur við Ölmu, skreppur vonandi á Akureyri og dúllar við sjálfan sig og aðra. Ég var í leikhúsi á sunnudaginn með Sigga og Ölmu. Við fórum að sjá Dýrin í Hálsaskógi sem krakkarnir í 10. bekk settu upp. Það var frábær leikmynd, búningar og umgjörðin öll, krakkarnir léku vel og sungu ágætlega. Alma sat stjörf og vildi ekki fara heim þegar þetta var búið. Á leiðinni heim pældi hún mikið í því af hverju refurinn var vondur og af hverju  hætti hann að vera vondur!!!!!! Já það er mikið spekúlerað þegar maður er bara næstum 4ra ára. Hún er farin að hlakka til að eiga afmæli og halda veislu. Er búin að spá í það síðan um áramót. Hún er búin að ákveða hverjum hún ætlar að bjóða og hvernig kökur HÚN ætlar að baka... já hún, því hún elskar að baka og ætlar sko sjálf að baka fyrir afmælið sitt. Mamma má hjálpa henni að gera eina nammiköku en hún ætlar að gera restina. Best að fara að sækja prinsessuna og koma sér heim. Það er svo gott veður að mann langar til að fara út í göngutúr og njóta veðursins.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 14:28:52 / Kristins

Smá könnun

Ég skora hér með á þá sem þekkja mig að svara þessum spurningum. Ég fann þetta inni á síðunni hans Bóa og svaraði þeim þar og það gæti verið skemmtilegt að sjá hvað þið hafið að segja krúttin mín.

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/n af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu af hverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað, hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkir þú mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlar þú að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10