Bloggsvæði Kristínar Snæland
Verkefni fyrir nemendur í 10. bekk
ert í göngutúr með foreldrum þínum á laugardagskvöldi og mætir
þinn eða mamma eru kennarar og þau kenna eitt af þeim fögum sem
tilheyrir mjög sterkri klíku. Þú ert nýkominn með kærasta eða
ein/einn heima. Þau hafa bannað þér að halda partý - en félagar
átt engin almennileg föt og félagar þínir eru farnir að gera grín
að þér. Þú biður um pening heima fyrir nýjum gallabuxum en færð
ert búin(n) að lofa að heimsækja ömmu þína og hjálpa henni að þrífa
íbúðina. Rétt áður en þú ferð af stað kemur vinur/vinkona þín í
heimsókn og biður þig um að hjálpa sér við heimanámið því það sé
Veljið eitt af þessum verkefnum og svarið inn á bloggið mitt :)
Kveðja Kristín
hæ hæ
Ný síða í vinnslu
er slóðin þangað. Þar er ég að vinna að nýrri myndasíðu því hin
suður á laugardag, fórum með Ölmu og pabba í Fjölskyldu og
húsdýragarðinn þar sem Alma hljóp á milli leiktækja skríkjandi af
gleði. Svo fór hún með pabba sínum í bát á drullupollinn, hann
bilaði og hún panikaði og grenjaði úr sér lungu og lifur... he he
he :lol: Eftir þetta fórum við og hittum Friðrik og strákana og
Sibba í Keiluhöllinni og tókum einn leik. Allir spiluðu með rennuna
uppi því það voru svo margir krakkar og fyrir rest vann Friðrik
alla hina með eins stigs forskot á Ölmu (note bene... hún er
fjögurra ára og var að keila í fyrsta skipti.......!!!!!) sem varð
í öðru sæti. Það var bara fyndið þegar tveir leikir voru eftir, hún
yfir og þá benti hún á frænda og sagði roggin... ég ætla að vinna
Lilju, kærustu pabba. Þar var skipt um föt og farið með limmósínu á
Argentínu þar sem pabbi bauð í glæsilega máltíð.. nammi
strengi í gær... Eftir matinn var svo slakað á heima hjá Sif,
dóttur Lilju. Þetta var mjög fínt og við Siggi gistum hjá Sif og
læddumst út fyrir allar aldir þegar hún og kærastinn voru ennþá
sofandi. Heim var komið í gær eftir heimsókn til Mæju og Gumma og
Óvissuferðin rosalega
með Ífunum til Reykjavíkur. Við lögðum af stað á fimmtudegi,
borðuðum á Gauksmýri og sáum baulað á Sylvíu Nótt. Leiðinlegt fyrir
hana en frekar fyrirséð. Mér fannst að vísu áhorfendur dónalegir,
það er hægt að finnast eitthvað leiðinlegt án þess að baula en hvað
með það. Við stoppuðum svo við Baulu þar sem Jóna og Eva Margrét
létu okkur dansa á bílaplaninu í skítakulda. Við vorum samt í
glamúrfatnaði og sumar flottari en aðrar :lol: Á föstudeginum var
farið á Listasafn Einars Jónssonar, upp í Hallgrímskirkjuturn, í
keramikmálun, Listasafn Íslands, Grænan kost og Jómfrúina. Við
fórum síðan að gefa öndunum og til að forðast að fá fuglaflensu
vorum við auðvitað vel búnar með hárnet, munngrímu, svuntu,
plasthanska og hlífðarskó!!!! Við vöktum auðvitað smá athygli og
einn róni stal af okkur andabrauði :) he he he he he Seinna um
kvöldið fórum við á Fridays og svo í lúxussalinn í Smárabíó að
horfa á DaVinci Lykilinn. Frábær sæti og mynd, mæli með því. Nú á
laugardeginum var byrjað á sandkastalagerð í Nauthólsvík og svo
gengið upp í Perlu og farið á Víkingasýningu þar. Farið í Keilu og
snædd þar pizza. Því næst farið á Hótel Sögu í Mecca spa þar sem
við fengum partanudd, heitan pott, gufu og sauna ásamt ýmsum
blautum og þurrum veitingum!!!! Þegar við komum til baka á hótelið
var stutt jóga og svo spariföt, grillmatur, Eurovision og svo
brjálað ball á Nasa með Páli Óskars. Á sunnudeginum týndum við
skeljar og steina í Hvalfirði, keyrðum Dragann, það sprakk á
bílnum... he he he :$: en svo fórum við til Jónu og skoðuðum
tómata, býflugur og dældum í okkur ljúffengum veitingum. Það voru
þreyttar en ánægðar konur sem konu heim um 6 leytið í gær. :) Svo
næstu helgi er aftur suðurferð því pabbi á 60 ára afmæli á morgun
og hann heldur upp á það næstu helgi.
Rauðir skór og gott veður
helgina. Fékk þá á 300 kall :D. Þeir eru rauðir, opnir og með hæl,
mjög sumarlegir og sætir :) Nú á ég bara eftir að kaupa mér eina
aðra skó í lit áður en ég má aftur kaupa svarta, brúna eða ljósa!!!
bestía... nennti því samt ekki en svona er það bara á þessum
árstíma. Þegar ég kom heim hamaðist ég í lóðinni í rúma tvo tíma
Ífukvöld og skór
haldið í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra og mættu um
120 manns. Minn hópur var með leiklestur um konur og viðskipti á
Sauðárkróki frá 1955 -1980. Við stóðum okkur að sjálfsögðu vel og
fólk hafði gaman að. Á þessu skemmtikvöldi voru einnig skópistlar
og atriði tengd, móður, konu og meyju ásamt skóskiptingum en konur
og skór var undirþema kvöldsins. Við mættum allar með 8 skópör sem
hef ákaflega óspennandi skó.... þ.e.a.s. þeir eru lang flestir
svartir, nokkrir brúnir eða ljósir. Ég á enga skó í öðrum litum en
þarna mátti sjá rauða, bláa, græna, fjólubláa, bleika og ýmsa aðra
liti. Þeir voru auk þess margir mun skrautlegri en mínir skór. Það
er ekki það að mig langi ekki í svona skó... mig langar oft í þá en
ég er svo föst í að vera praktísk þegar kemur að skókaupum að ég
enda alltaf á einhverjum sem ég get notað við næstum allt í 100
ár.... úfffff. Ég bara verð að gera eitthvað í þessu í
Bournmouth... ég var alveg veik í marga af þessum skóm og nú er
bara að duga eða drepast... ég mun kaupa a.m.k. tvenn pör í
einhverjum lit sem ég á ekki áður en ég kaupi mér aðra svarta skó.
Hvað er þetta annars með konur og skó....???? Af hverju elska konur
arskoli.is.... lengst til vinstri er hlekkur sem heitir myndasafn
og þar undir kemur skíðaferðalag 9 .bekkur. Fletta svo bara á 4
síðu og þar er mynd af mér í blárri ullarpeysu með húfu og
Myndasíða óvirk í bili
fljótlega en þeir sem geta ekki beðið geta fljótlega eftir helgi
farið inn á vef Árskóla og séð myndir úr skíðaferðalaginu og þar
ætti að vera mynd af mér á skíðum. Slóðin er www.arskoli.is
Á skíðum skemmti ég mér... trallallallalla
vissuð það nú fyrir :) Well.... ég fór í skíðaferðalag með 9. bekk
á þriðjudag og miðvikudag. Til að gera langa sögu stutta fór ég á
skíði báða dagana og stóð mig bara nokkuð vel. Ég datt ekkert, rann
aðeins afturábak þegar ég fór einu sinni úr lyftunni en að öðru
leyti bara meistara taktar. Ég hef nú bara farið tvisvar áður og þá
var ég 12 ára. Því er ekki skrýtið þó ég hafi verið og sé ansi
stollt af mér. Það er að minnsta kosti á hreinu að ég hefði aldrei
gert þetta ef ég hefði verið 51 kg þyngri. Ég hefði aldrei þorað
því en núna þori ég öllu... he he he ja svona næstum því... ég
þorði ekki á bretti :) enda nóg að læra á eitt í einu. Prufa það
bara seinna. Ég setti myndir af mér á skíðum inn á myndasíðuna mína
svo kíkið endilega.
Gleðilegt sumar
að vera löt að blogga undanfarið en það er reyndar búið að vera
mikið að gera og ég líka á ferðalagi. Það var mjög gaman fyrir
sunnan um páskana. Við fórum í fullt af fermingum, hittum fullt af
skírdag og pabbi og Lilja komu til okkar á föstudaginn langa. Þau
voru fram á páskadag og þegar þau fóru skruppum við yfir nótt út
og samskiptum um páskana en þannig á það líka að vera. Ég er að
fara í fermingu á morgun og við höldum upp á afmælið hennar Ölmu á
sunnudaginn svo það er ennþá nóg að gera. Ég ætla því að hafa þetta
stutt núna en segja ykkur meira eftir afmælið og setja þá líka inn
bráðum páskar
ég setji myndirnar frá árshátíðinni á netið þá verð ég að segja að
ég hef bara ekki nennt því og líka verið upptekin undanfarið. Það
er samt planið að setja nýjar myndir inn á myndasíðuna mína um
eins og aðrir. Maður hittir vini og ættingja sem maður sér ekki á
hverjum degi. Það verður gaman að fara suður og mæta í allar þessar
fermingarveislur. Okkur er boðið í 8 fermingarveislur þetta árið og
þar af eru 4 sama daginn og 6 í páskafríinu!!!!! :$. Þó mér finnist
gaman í veislum er þetta nú einum of. Það þýðir að við Siggi verðum
daginn og Siggi fer til Brynju frænku sinnar og Gísla bróður síns.
Á skírdag eru bæði Auður og Jóna að ferma og ég ætla að skrópa hjá
Auði því hún er með kvöldmat. Ef ég fer til hennar kemst ég svo
Góð kaup hjá Rauða krossinum
maður getur aftur farið að sinna venjulegri kennslu og slakað
svolítið á. Það er flensa að ganga svo sumir bekkir eru bara hálfir
og í dag var Alma komin með 39 stiga hita. Ég reikna því síður með
að fara suður þessa helgi í fermingarveislu eins og stóð til. Að
sumu leyti get ég vel hugsað mér að slaka á heima en mig langaði
samt suður að sjá íbúðina hans pabba og mæta í veislu. Það er
alltaf gaman. Ég gerði svolítið síðustu helgi sem ég hef aldrei
gert áður. Ég fór á markað hjá Rauða krossinum og keypti mér notuð
föt!!!! Fatasjúka ég gerði góð kaup :) :haha: Ég keypti rauða
leðurkápu á 1000 kall, drappaðan leðurjakka (eða kápu.. svona
millisídd) á 1000 kall og fullan poka af fötum á 500 kall!!!!!! Í
pokanum voru grænar flauelsbuxur, fjórir stuttermabolir, skyrta og
brúnt leðurbelti!!!! Buxurnar, einn bolurinn og beltið var
greinilega ónotað!!!! Ég ætla sko að kíkja þarna aftur og gera
meira af þessu. Það var auðvitað fullt af ljótum og hallærislegum
fötum en með því að gramsa og máta tókst mér að finna margt
eigulegt. Þetta er sniðugt þegar mann vantar allt. Ja... sko... ég
er nú búin að kaupa svo mikið af fötum undanfarna tvo mánuði að mig
vantar svo sem ekki mikið :lol: en alltaf gaman að eiga nóg af
fötum!
Árshátíðar og fermingar
að sinna garðvinnu þegar ég er búin að vinna í dag enda næstum 10
stiga hiti, sól og léttskýjað... bara frábært!!!!:haha: Það er búið
að vera mikið að gera hjá mér í félagslífinu síðustu daga og í
næstu viku er árshátíð hjá unglingastigi. Það þýðir að við erum á
stanslausum æfingum, reddum búningum og fleira sem þarf til að allt
gangi upp. Það verða tvær leiksýningar á mánudag og aðrar tvær á
þriðjudag. Ég hlakka rosalega til á miðvikudaginn... þegar þetta
stand allt saman er búið. Þetta er að sumu leyti gaman en vesem
fyrir mig því ég þarf að redda Ölmu pössun frá því hún er búin á
leikskólanum og þar til ég kem heim um 10 að kvöldi. Greyið verður
á tveimur stöðum. Fyrst eftir leikskólann verður hún hjá Ingu Láru
Ölmu núna og þegar miðstigið er með árshátíð passa ég stelpuna
hennar.. :D: geðveikt sniðugar!!!! :lol: Ég sæki hana svo um
kvöldmatarleytið og fæ nokkrar mínútur með henni á milli sýninga.
Svo passa gelgjurnar á heimilinu hana og koma henni í bælið. Það
verður líklega frekar athyglissjúk lítil stelpa sem ég þarf að
sinna næsta miðvikudag...!! Þetta er eiginlega ferlegt því síðasta
mánudag og þriðjudag hitti ég hana líka lítið útaf félagsstörfum.
Við fórum því í gær í langan göngutúr mæðgurnar, kíktum á
bókasafnið og á kaffihús. Þetta var þrælfínt en svo var Alma svo
heppin að græða einnig spóluna með upptökunum hjá 10. bekk af
leikritinu af Dýrunum í Hálsaskógi. Hún sat límd við sjónvarpið í
gær og horfði á þetta. Hún saug puttan, raulaði með lögunum og
klappaði þar sem áhorfendur klöppuðu. Það var bíó að fylgjast með
henni. Nú hlakka ég bara til helgarinnar enda hitti ég Sigga aldrei
orðið nema um helgar. Hann vinnur svo mikið að maður þarf að hafa
mynd alltaf uppi við til að minna sig á hvernig hann lítur út... :$
en svona er það bara. Okkur er boðið í 7 fermingar þetta
árið!!!!!!! SJÖ..... getið þið ímyndað ykkur....... við verðum
komin með ógeð. Þar af eru 3 sama daginn!!! he he he en þá erum við
að vísu að spá í að skipta okkur. Það eru tvær vinkonur mínar að
ferma í Keflavík og bróðir Sigga á Akranesi. Sniðugast að fara bara
á sitthvorn staðinn því ég verð hvort sem er nýbúin að hitta sama
fólkið (ættingja hans) í fermingunni hjá systir hans tveimur vikum
áður svo ég vil frekar fara í hinar veislurnar. Jæja nenni ekki
þessari ritgerð lengur. Hlakka bara til páskafrísins og vorsins
þegar við Siggi förum með kennurunum til Bournmouth og London í 8
daga. Það verður geggjað!
Afslöppun í vetrarfríi og veikindi
Ja.... fyrir utan veikindi. Ég var svo óheppin að fá sýkingu í
kinnholurnar og geng því núna fyrir pensílíni. Svo fannst mér ég
orðin svo hress á sunnudaginn að ég fór út í göngutúr og sló niður
því í morgun var ég slöpp og með hita. Ég verð nú örugglega orðin
betri á morgun því ég tek því bara rólega í dag og klára pensilínið
mitt ;) Ég fór með Ölmu á leikskólann í morgun og ætlaði aftur upp
í rúm en kíkti fyrst á póstinn minn. Kom þá ekki Erla vinkona inn á
msn en hún býr í Svíþjóð. Það var orðið langt síðan við höfðum
spjallað og eftir 3 og hálfan tíma og verki í rössum ákváðum við að
hætta og gera eitthvað uppbyggilegra... Það er potttétt að þetta
eru lengstu samræður sem ég hef átt á msn eða í síma. Mér leiðast
símar og msn er bara fínt í smá stund. Annars er búið að vera fínt
hjá mér síðustu daga. Ég er búin að fara í heimsóknir, baka, taka á
móti heilu kvennfélagi í ostapinna og snarl og bara hafa það
náðugt. Jóna vinkona í Borgarfirði (rétt við Kleppjárnsreyki) er í
kvennfélagi. Hún var að skipuleggja óvissuferð í Skagafjörð og ég
hjálpaði henni aðeins. Mér fannst svo tilvalið að hitta hana á
djamminu um kvöldið svo ég bauð nokkrum stelpum í partý og kíkti út
á lífið. Ég hef ekki farið út með stelpunum... mjög lengi!!! Maður
fer alltaf með makanum en í þetta skipti átti hann að sjá um að
passa svo ég kæmist út. Það var alveg hrikalegt stuð hjá okkur. Við
fórum meira segja í nokkrar mínútur inn á Barinn. Það var bara
fyndið því ég stóð og horfði í kringum mig og sá all nokkra
fyrrverandi nemendur mína... :S var svona ekki alveg að fíla það og
við fórum aftur á Kaffi Krók enda ágætt stuð þar.
Bráðum vetrarfrí
kemur 6 daga vetrarfrí. Það verður geggjað. Ég hlakka ótrúlega
mikið til. Maður verður nú að njóta þess aðeins að slaka á og njóta
lífsins. Ég ætla að reyna að gera sem minnst skynsamlegt heldur
frekar hluti sem rækta líkamann eða auðga andann.... ohhhh ég er
svo skáldleg :) :haha: Maður skreppur í ræktina, út að ganga,
kannski í sund, fer í heimsóknir, gerir handavinnu, les góða
við sjálfan sig og aðra. Ég var í leikhúsi á sunnudaginn með Sigga
og Ölmu. Við fórum að sjá Dýrin í Hálsaskógi sem krakkarnir í 10.
bekk settu upp. Það var frábær leikmynd, búningar og umgjörðin öll,
krakkarnir léku vel og sungu ágætlega. Alma sat stjörf og vildi
ekki fara heim þegar þetta var búið. Á leiðinni heim pældi hún
hann að vera vondur!!!!!! Já það er mikið spekúlerað þegar maður er
bara næstum 4ra ára. Hún er farin að hlakka til að eiga afmæli og
halda veislu. Er búin að spá í það síðan um áramót. Hún er búin að
ákveða hverjum hún ætlar að bjóða og hvernig kökur HÚN ætlar að
baka... já hún, því hún elskar að baka og ætlar sko sjálf að baka
fyrir afmælið sitt. Mamma má hjálpa henni að gera eina nammiköku en
hún ætlar að gera restina. Best að fara að sækja prinsessuna og
koma sér heim. Það er svo gott veður að mann langar til að fara út
Smá könnun
Ég fann þetta inni á síðunni hans Bóa og svaraði þeim þar og það
gæti verið skemmtilegt að sjá hvað þið hafið að segja krúttin
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en
15. Ætlar þú að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um